Noregur var Frábær! Fórum á sunnudeginum kl 8 af stað með rútu héðan til Fredrekshavn, þaðan með skipi til Osló og þaðan rútunni til Lillehammer, eða Hafjell. Vorum komin þangað um 10 leytið. Var geðveikt hált í brekkunni upp þar sem rútan fór upp brekkuna í húsin og gæinn var ekkert að hugsa um að setja keðjurnar á fyrst eða gefa aðeins meira í en músarrindill myndi gera, svo við keyrðum upp ... langt upp ... alveg næstum alla leiðina, því rútan tók auðvitað uppá því að renna niður geðveikt hratt og gæinn eitthvað uhh bremsa gíra niður hvað á ég að gera uhh stýra haha hann var klikk í hausnum, en þetta reddaðist nú allt, það fyndnasta við það að Danska fólkið var svo hrætt að það var að líða yfir það! haha hálvitar:D
Við bjuggum í 3 íbúðum sem lágu í fjallinu svo við renndum okkur að lyftunni heimanfrá. Vorum 30 krakkar sem fóru og það var geðveikt stuð!:D íbúðirnar voru Mjög fínar! 2 Flott TV, 3 herbergi og svefnpláss fyrir 3,3, og 5,... 2 klóst svo var sauna ;D Íbúðunum var skipt þannig að það var ein íbúð með kennurunum, önnur íbúð með 3 pörum og 3 venjulegum manneskjum, og svo Strákaíbúðin, með 8 subbulegum strákum og mér. haha nei ég segi svona, þeir voru ekkert subbulegir;D Ég, þar sem ég var eina stelpan vonaðist til að fá eitt Herbergið útaf fyrir mig:D það gekk hálfvegis. í einu herberginu voru ísl strákarnir, hinu dönsku klikkuðu strákarnir sem jú eru doldið subbulegir, en þá var bara Marek og Peter danski eftir. ÉG ætlaði sko alls ekki að sofa í sama rúmi og Marek eða peter! en ég gat eiginlega ekki gert marek það að henda honum ínní subbulega danska herbergið:/ þannig hann fékk að sofa í koju fyrir ofan rúmið mitt, en ég henti samt peter þangað inn.
Á mánudeginum vorum við komin uppí fjall kl hálf 10. skíðuðum flest saman ogathuguðum fjallið og brekkurnar og svonna. svo var matur í hádeginu sem við höfðum keypt, hver íbúð fyrir sig. Það var alltaf fínn matur hjá okkur, pasta, hamborgarar, tortillas, kjúklingur og bara mjög gott ekki sull eða ógeðslegt. Meira segja kunnu strákarnir að elda þó nokkuð mikið. fór samt smá í taugarnar á mér:P því ég vildi elda og er víst svoldið stjórnsöm !arr arrr! en æj það var samt fínt að fá matinn uppá diskinn bara:D Svo var skíðað til 4, en þá lokuðu lyfturnar. Svona gengu dagarnir, Geðveikt skemmtilegt, fullt af stökkpööllum geðveikt háum og flotum! geðveikar brekkur, AWSOME!;D Um kvöldið á mánudeginum fórum við að klifra á risavegg í íþóttahúsinu þarna í bænum, haha Anders (kennarin) sagði að ég ætti að hugsa alvarlega um að að gerast klifrari því ég hefði svo góða tækni og eitthvað ;D haha það var fyndið;D þarf að skella inn myndum líka:D
það var einn stökkpallur sem var ívið brattur upp og svo var svona slide borð eftir hann og svo hopp niður. Mig langaði svoldið að hoppa á honum en vildi frekar hoppa á seinustu dögunum ef ég myndi nú gera eitthvað klikkað. og auðvitað þurfti að taka þetta upp. Ég tók þó æfingarstökk á honum meðupptökumann, með því að fara eins hægt uppp og hægt var og klifra svo uppá borðið á skíðunum og hoppa svo niður. það gekk ágætlega nema hvað langan tíma það tók. í annað æfingarskiptið stökk ég hliðina á borðinu til að sjá hvort ég myndi ná uppá borðið á þessum hraða. Það gekk. Á Fimmtudaginn ákvað ég svo að stökkva þarna. Bað Lasse umað taka mig upp þegar við lögðum af stað niður.
Ég brunaði af stað
Uppp brekkuna
Uppí loftið- alveg nógu hátt til að ná á slideborðiið!
Uppá borðið! hugsaði með mér YeiiJJ allt gengur vel !!;D;D AWSOME!!
það næsta sem ég man var að ég lá í snjónum með DÚNDRANDI hausverk og heyrði Jóa kalla á mig, gat samt ekki svarað fyrir sársauka í hausnum og andlitinu vinstra megnin. Svo var Marek kominn niður til mín og var að spurja hvort væri ekki allt í lagi? jújú auðvitað var í lagi með mig, spurði hvort Lasse hafði tekið þetta upp...
NEI HANN TÓK ÞETTA EKKI UPP!!!LAME LAME LAME! hann hafði víst gleymt því or sum.
Fékk mar á kinnina og hökuna og var með algjöra Noornahöku.:D þið vitið svona langa niður og með bólum, nema mín var ekki með bólum bara sári :D djöfull var ég með mikinn hausverk .. fekk líklegast heilahristing því mér var geðveikt flökurt og leið ekki beint vel;O:D en það lagaðist:D var samt að kroppa sárið á hökunni, leiddist nebbla svoldið, og það var svolítið sárt að kroppa bólgið svæði en hvað er þetta með fólk að kroppa álltaf á sér sárin? æjh allavega svíður mér núna:(
Tók mér smá pásu og kíkti á sjónvarpið og í tölvuna, en það var ekki gott net né símasamband þarna... gekk samt :) Var opið um kvöldið á fimmtudeginum svo við fórum út nokkrar ferðir. Öll kvöld var drykkerí á gæunum og það var svo mikið drama að ég hélt ég væri að búa með gellum ekki strákum!! haha alveg klikk;D geðveikt gaman samt:D
Lögðum áf stað heim kl a3 á föstudeginum þegar við vorum búin að skíða um morguninn og skila íbúðunum og alles skalles:) Rútubílstjórinn var víst eitthvað fúll og vildi ekkki opna rútuna fyrir krökkunum fyrr en kl 2 eða eitthvað. fúlindi hans voru rekin til þess þegar Jói og hemmi fóru til hans kl hálf 3 um nóttina til að kaupa meiri bjór af honum. hann skellti á þá;D allavega svo fórum við í skipið og ég kíkti á einhverja teiknimynd og borðaði kvöldmat og sitthvað .. vorum með káetur og ég fór bara að sofa um miðnætursbil.. vorum að skakke sammen ínní herberginu okkar jóa hemma og matta og skoða myndir allt fólkið þarna:D allir troðnir og alles...:) jæja svo gekk ekkert svakalega vel að vekja strákana í morgun, þeir komu inn um hálf 7 leytið og við áttum að vera komin úppí rútu kl 8:) Víst voðalega klikkuð nótt hjá þeim sem ég fekk að vita af þegar þeir komu;D haha ;) allavega voru þeir búnir að gefa mér leyfi til að vekja þá með vatni ef þeir vöknuðu ekki ... jói vaknaði strax en ekki alveg matti... sov ég tók myndavélina og vatnsglas og skvetti vatninu á matta!!:D:D:D hahahahahha .. hann vaknaði samt ekki.. bara öskraði, settist upp og fór aftur að sofa;D bjáni;) jæja svo loks vöknuðu þeir og við vorum orðin of sein í rútuna ca 10 min eða meir. kennararnir voru búnir að segja að þeim væri skítt sama ef við værum ekki komin í rútuna kl 8, þau myndu leggja af stað hvort hið er. jájá=) alltí lagi haha;D hefði veri ðgeðveikt fyndið ef við hefðum misst af henni;D hún beið samt rútuklikkið;) vorum komin hingað um 9 leytið.. unpakkaði, og fór að sofa aftur... í tölvuna ætlaði til arhus eða aalabrogar, en klukkan var orðin svo margt að ég hefði ekki náð búðunum. fer á morgun með Tinnu Kristínu og Aroni til aalaborgar í staðinn:) svo er bara seinasta vikan að byrja og allt að klárast
Until næst:D
15. desember 2007 klukkan 18:54
Lóa Maríanna Ţórđardóttir 7 athugasemdir
hey hó skralleríró.. er ekkert mikið búin að gera.. eða jú nema ég bara man það ekki alveg núna.. welll allavegana
keypti mér smá föt:D
Cheerleading dansinn og allt tilbúið svo verður það sýnt á laugardaginn! ég læk tóttlí Cheerleader!
nældi mér í nokkrar jólagjafir
Gerði STÓRHREINGERNIGU á sunnudaginn ... sópaði og moppaði og þurkaði af öllu, klístrinu á gólfinu, græna blettinum sem var fastur við gólfið líka og svo kakóslettunum á veggnum;D hahaha ;) endurraðaði í allar hillur og alles skralles.
er búin að kaupa mér nóvember og Desember jóladagatöl:D
búnaðfá mér meira garn til að prjóna meira.. haha ég er svo gamaldags;D
phaaaa mér finnst sko ekki gaman að hjóla
við fórum út að hjóla í adventure og vorum að hjóla "fjallahjól" eða eins fjallahjólslega og hægt er að kalla það í Danmörku;D Venjulega er ég alveg á fullu niður brekkurnar en ekkert fljótust upp. jæja núna hafði ég óskaplega vonda tilfinningu um þetta og ég var sko alveg viss um að ég myndi þeytast fram að hjólinu, hjólið skoppa á tré og eyðileggjast, hjálmurinn myndi brotna í tvennt og ég myndi barasta hauskúpubrotna. þannig þið skiljið kannski af hverju ég var ekkert að fara rosalega hratt. og ekki ætla ég að gleyma því að segja ykkur frá því að þarna voru fullt af trjám! já við vorum sko inní skógi. og þþað var búið að klippa aldeilis heilann hellingin af trjánum og auðvitað er glás af ný föllnum laufum þarna svo maður sér ekki trédrumbana sem liggja undir laufunum, heldur klessir maður á þá og skoppast hnakkurinn upp og þar að leiðandi meiðir maður sig á setuni takk fyrir. við áttum að fara 6 hringi. þegar ég var búin með 5 heila, þá sagði Anders (kennarinn) að ég mætti nú bara bíða aðeins því krakkarnir væru hvort eð er að koma. það var ég þakklát fyrir en lét mig jafn framt líða eins og hálvita
næsta dag áttum við að fara þangað aftur og hjóla. ég var svo pottþétt viss um að núna myndi ég stórkostlega detta og eyðilegggja hjólið að ég fékk þennan rosalega höfuðverk og gat því ekki hjólað, ég rankaði nú við mér um hádegisbil þegar ég hafði sofið úr mér hausverkinn góða.
ÉG var að fá mér myspace!;D oh ég kann ekkert á það :/ hahaha;) www.myspace.is/minafinamagapina
Vorum í spinning bóklegu og Thomas var að segja okkur um líkamsstarfsemina þegar við þjálfum, og stelpurnar voru að skrifa niður, ég kunni þetta samt allt og fannst það ívið erfiðara að þýða hvað hann sagði og skrifa það á ísl og hlustaí leiðinni þannig ég hlustaði nú bara samt vandlega og skrifaði lítið. Svo sagði hann alltaf: "Skilja allir?" má þar nefna að við erum 5 og leit hann í sífellu á mig þar sem ég var ekki á fullu að skrifa niður. hann hefur víst haldið að ég væri algjör kjánavitleysingur og ekki skilið hann... mér fannst það rosalega fyndið og var því ekki að leiðrétta;D
Annars hefur ekkert mikið gerst núna.... gerði Eldborgarbita um helgina.. þeir kláruðust í dag.
hahahha við vorum í söngtíma og svo áttum við að standa í stelpu og strákaliðum og syngja, þegar það var búið þá fóru allir til síns sætis, og þurfti ég að fara fram hjá nokkrum til að ná í mitt sæti. það gegg mjög vel þangað til ég klöngraðist yfir góðan vin minn hann Marek. Þegar ég lyfti einum fætinum mínum yfir hans (hann var sko sitjandi og allir sitja í röð eins og í bekk bara engin borð og miklu þrengra á milli sæta, æj þið skiljið alveg örugglega vonandi) þá lyfti hann bara fætinum sínum upp! þannig ég var á leiðinni að renna í spígat með einn fótinn uppí loftið! en nei sko snjalla ég ákvað (óákvað, ósjálfráð viðbrögð) að sparka í bringuna á honum. það hefur verið aðeins of fast því að hann víst misst andann í smá sekúntu og var lengi að jafna sig hahahahhahahaha:D það var sko fyndið;D
búið að vera eitthvað pólitíkusarval hérna .. ekkert svakalega spennandi og æðislegt:P
Annars er Rosalega gaman í Keramik sem við erum í á mánudögum eftir hádegi:D
Og svo er það MATURINN
í Dag var skammtað í kvöldmat. það voru 4 beikonsneiðar, meðlætið var kartöflur, rifnar gulrætur og sósa.
þetta er alveg til háborinnar skammar. Eða á þetta að heita anorexíuskólinn í stað íþróttaskóla? Það er baraaa svoooo leiðinlega leiðinlegt að borða 25 kartöflur á dag og síðan gulrætur þangað til að saddleiki næst.
í Dag var bara Spinning. við vorum í spinning 2 og vorum að finna maxpúlsinn. hvíldarpúlsinn minn er 44 og maxpúlsinn er 194.. er það gott? æj ég á eftir að gera púlsblaðið fyrir morgundaginn. best að drífa í því.
og svo veðrið, það hefur kólnað en er samt bara ágætisveður, frost og smá kuldi og ekki of mikill vindur:)
13. nóvember 2007 klukkan 21:03
Lóa Maríanna Ţórđardóttir 3 athugasemdir
04nóvember
Adventureracið: fórum með rútu héðan kl hálf 10 og komum um hádegisbil einhvert þar sem stöðvar GBD eða BDI eða GDG eða eitthvað álíka er, hinum megin við sjóinn var århus. þessu var skipt í 3 lotur. Við vorum í 4 manna hópum. líklegast voru um 15 hóplar. Fyrst fengum við blað með fullt af þríhyrningum og við áttum að segja hversu margir þríhyrningar voru á blaðinu. þeir sem voru fyrstir að klára dæmið fengu að ráða fyrst hvað þeir svæfu. það var 1 tjald, 5 skýli sem var opið inn, 1 stórt indjánatjadl þar sem 3 lið gátu sofið í, og síðan 3 lítil indjánatjöld sem 2 lið sváfu í. í Indjánatjöldunum var ekkert gólf og ekkert innra tjald. Okkar lið var ekki fljót að leysa þríhyrningsþrautina svo við sváfum á grasinu undir Indjánatjaldinu ásamt íslensku strákunum. kl 2 byrjaði svo 1 lota. þar voru verkefnin: að búa til hnút á pasta, það sem við fengum var Pasta, allt hitt, eld pott, eldivið og allt það þurftum við að finna sjálf. Síðan þurftum við að labba hring á 3 kössum, og við máttum ekki snerta grasið. síðan skutum við með boga og örvum, ég hitti næstum því, ss aldrei. síðan fengum við 3 trábjálka og 2 löng bönd og 3 stutt, svo áttum við að stultast með 1 uppá bjálkunum og hinir máttu snerta böndin en ekki bjálkana, þannig þurftum við að fara ca 10 metra fram og til baka, það gegg mjög erfilega. Svo var bike and run, ss 2 hjól og 2 hlauparar og við þurftum að finna 10 staði, líkt og ratleikur, við skiptum okkur, 2 hjólin fóru saman ytri stöðvarnar 6 og við hlupum innri stöðvarnar 4. þegar við vorum búin að finna allt þá fórum við á hittistaðinn og þar voru þau, aðeins búin að finna 1 stöð. þarna var orðið mjög dimmt og má þar nefna að við vorum að leita að 10 cm litlu blaði inní skógi þar sem við vissum radíusinn uppá c.a. 10 metra. Svo var 1 stöð sem við náðum ekki, og hún var aðfara útí sjó og bera vatn uppí húsið í svörtum ruslapokum. þá var klukkan orðin 6. þess má geta að ég var alltaf að koma með brilliant æði hugmyndir en jájá þeim var hummað við og ekkert meira, eftir svona 1mínótu þá kom peter fram með sömu hugmynd og ég ! ALLTAF! mér leið ekkert smá eins og tímon og pumba!! aahhh helvítis danir! þá var pása. 2 lota Byrjaði kl 8. þá var komið kolniðamirkur líkt og klukkan væri 2 heima á desembernóttu. jæja, þá voru verkefnin að hjóla og hlaupa nokkurn spöl þangað til að við fyndum Kanó og þá áttum við að sigla 2 kanónum í sjónum í myrkrinu með þau 2 litlu ljós sem við vorum með á hjólunum. jæja það gekk ekki vel þar sem ég var í bát með peter sem var skíthræddu við vatnið og sjóinn og myrkrið og vindinn og hljóðin og bara nefndu það. það var alveg yndislegt. ég sat fyrir aftan og átti því að stýra. en þarsem hann þrufti að stjórna öllu þar sem hann var svo hræddur þá var hann að stýra líka, svo ég sagði honum nú að ég ætlaði að stýra, það þýddi lítið að vera að reyna að stýra framaná bátnum! og hann ummaði því, þá sagði ég honum að vera aðeins hægra megin eða vinstra megin hvort sem honum líkaði betur, svo ég gæti nú stýrt almennilega án þess að þurfa stýra bátnum og svo beina bátum rétt svo peter væri að gera í rétta átt, hann ummaði því ekki og sagðist ætla stýra líka. já hann er hálviti. svo auðvitað fórum við ekki í rétta átt. það var ekki sérlega gaman að hlusta á tuðið í honum hversu ekki gaman þetta væri og hverstu hörmulegt allt væri. jæja ég lét sem ekkert heyrði illt og hló að þessu rugli í honum. jæja svo komum við að landi þar sem blikkandi ljós var fundum stöðina þar sem við áttum að vera og þurftum svo að sigla til baka. ahh gusfraba. jég vildi sko vera fyrir aftan, því ekki ætlaði ég sko að láta hann reyna að panikka og stýra okkur útí helgreipar hafsjósins. hann var fyrir framan. Hann vildi endilega fara útí bátinn, ss stíga fremst í bátinn þegar báturinn var allur á landi og ég gæti ýtt bátnum þannig útí sjó á öllum steinunum sem myndu rispa hann, og þar að auki ætti ég að ýta honummeð bátnum. þarna var ég orðin þó nokkuð pirruð á heimskunni í honum og sagði honum að hann gæti bara gjörað svo vel að fara í bátinn þegar hann væri meira en hálfur kominn útí takk fyrir! hann gerði það og ég ýtti og hoppaði svo uppí, settist og við byrjuðum að ýta okkur frá landi. það gekk mjög vel þangað til að hann peter fór að halla sér óvenju mikið á hægri hliðina mjög hægt. eða hvað sem hann var að gera þá var hann að velta bátnum! og já báturinn kolvalt og við pommsuðumst ofaní. það var bara mjög gaman, því að ég gat ekki aðeins hlegið að mér heldur skelllihljó ég að honum fyrir hræðslu sína og svo það að detta útí hahahaha:D honum fannst það ekki fyndið og byrjaði strax að kvarta undan kulda og öll fötin hans væru blaut, og það að hann ætti aðeins gallabuxur eftir! aðeins! haha hann var þó með einhverjar buxur! en jæja, þetta var bara til að auka hræðslu hans og öllu saman. hann gat ekki einbeitt sér og réri stöðugt í vitlausta átt og afturábak þegar hann átti að gera fram! þarna aukst pirringurinn minn um mun. þetta gekk svona alla leiðina og átti bara eftir að aukast eftir því sem öldurnar stækkuðu og við fórum lengra útá sjó. Svo hélt hann áfram að hræðast allt og öskra á allt og mig og segja að þetta væri mér og vindinum að kenna og hann væri ekki í jafnvægi þegar hann stjórnaði ekki öllu, ss ef allt var ekki rétt þá væri hann ekki íjafnvægi, hvort sem það var útaf vindi eða mér. og já hann ætlaði sko að róa í vitlausa átt! ÞARNA fekk ég mig fullsadda af nöldirinu tuðinu hræðslunni, aumingjaskapnum og hálvitanum honum pétri!!!!!! Fokkin róðu til vinstri Fokkin hálvitinn þin og gerðu það núna! ég var öskureið og sýndi honum það alveg! helvítis auminginn! geturu ekki gert neitt rétt hérna!!?!? tja ég sagði það nú ekki. en jæja svo vorum við komin að landi þar sem við áttum að bera kanóinn ca 10 metra. peter var fyrir framan mig svo ég sá voðalega lítið þar sem hann var með ljósið. tjah núna koldett ég um gífurlega stóra steina, beint á hnéð og fæ þennan risa fallega marblett, þá lítur hann pétur við og segir jeh! exeklí!! AARARRRRRGG ég hefði getað hoppað á hann og bitið af honum hausinn og hennt honum síðan í stein og rifið af honum hendurnar og fæturnarn og ARG ég var svo reið ! jæja, þá var bara að róa sig og hjóla og hlaupa til baka. ég ætla bara minnast á það að þarna var hann ennþá að tuða um hversu kalt honum væri og hvað hann ætti bágt. Svo loksins baðst hann afsökunar á hegðun sinni í bátnum. ég tók hana til greina, langaði mög mikið til að segja já ég skil þú varst mjög hræddur það er allt í lagi núna. en ég ákvað að vera góð, róa mig og segja allt í lagi **helvítið auminginn þinn** hugsaði ég á meðan. svo komum við að húsinu þar sem við áttum að fá næsta verkefni, honum vat ennþá svo kalt og blautt og allt að hann varð að fara skipta um föt og aumingja hannvar bara með gallabuxur. jæja eftir rúmar 20 mínótur inní tjaldinu var hann ennþá að skipta um föt, tala saman og ennþá að éta. það liðu svona 20 míndur í viðbóit þangað til hann var tilbúinn. hinirkrakkarnir, líka danir sátu í rólegheitunum inni í tjaldi og skiptu líka um föt því þau höfðu fengið slettur á sig. og svo spurðu þau í sífellu Maríanna ætlarðu ekki að skipta um föt? " nei mér er ekki kalt og við erum að fara að hreifa okkur, auk þess sem ég er ekki með önnur föt." þess má geta að úti var um 15° hiti! og aumingja peter var svo ískalt. ég þakka bara guði og öllum í heiminum að ég er íslendingur en ekki dani! guð sé lof bara! jæja loksins fórum við af stað og byrjuðum á ratleik. Við vorum með ca 2 metra ljós og síðan ca 10 metra ljós. vísbendingarnar voru ekki augljósar en við vorum með kort og teiknað inná kortið. enn og aftur kom ég með þessar æðislegu brilliand hugmyndir sem alltaf reyndust réttar en enginn hlustaði, eða kannski fór inn um eitt og útum hitt! en já eftir 1 mínótu kom peter auðvitað með sömu hugmynd og ég og wááá hvað hugmyndin var frábær þá og já við skulum sko gera það!! æði!! HÁLVITAR BRENNIÐI Í ÖSKU!! stundum held ég að danir virki ekki. við vorum ca 40mínótur að leita að þessum posted sem ég vissi um, en nei það ar ekki fyrr en peter kom upp með hugmyndina mína að þá var hún gerð. en jújú ég hélt nú ávalt uppi góða svipnum mínum. þetta gekk svona áfram og áfram og áfaram. ég var að verða brjáluð á þeim, heimsku þeirra, rortalestri þeirra, rökhugsun og mannlegum samskiptum! Ef ekki væri fyrir Carolinu, louisu, martin, finu og þau þá myndi ég með góðri samvisku segja að danir væru heimskir, dónalegir, graðir, allaf að káfa á hver öðrum og algjörir hálvitar! Kannski eru það bara danirnir í þessum skóla samt. Konan í prjónabúiðinni er dönsk en samt er hún mjög vingjarnleg. jæja aftur að reisinu. við vorum komin inní skóg, þar sem vegirnir voru litir en alveg hægt að rata. jæja við vorum komin að breygju sem ég sagði að við ættum bara að fara smá upp og þá værum við komin! en neiii ha hvar fórum við vitlaust hvar erum við núna erum við týnd!! NEEEEEEIIIII ÞIÐ ÞURFTIÐ BAR AÐA FARA SMÁ UPP ÞENNAN VEG HÉRNA!! en nei þar sem var hús þarna og það var ekki sem þau sáu á kortinu þá var ekki farið þangað! helvítis hálvitar! æjh ég fékk mig fullsadda á dönum þarna! ég bara þoli ekki dani. klukkan var að ganga 2 og við löbbuðum heim þreytt, deyja í fótunum og allt. við fórum að sofa þá . lota 3 byrjaði kl 8. við áttum að hjóla blindandi, binda hnúta, rata með áttavita, henda öxi og auðvitað þarf að minnastá að ég hitti öxinni í tréplankann;) taka gúmíhjólið úr dekkinu úr hjólinu og fara í gegnum það og setja það svo aftur saman, þetta var búið um 10 leytið og við tókum sama þá og svo voru úrslit og við vorum númer 7 í okkar riðli, (strákaog stelpu mix) voru 11 lið þar. svo fengum við að borða og fórum heim. Vorum dauðþreytt og ég svaf allan daginn eiginlega. á föstudaginn var grundtræning og ég fekk gífurlegann hausverk þá þannig að ég lagðist bara uppí rúm aftur. svo fór ég í spinning seinni hluta dagsins þar sem við tókum upp hvernig við hjóluðum og horfðum svo á það. ég gerði allt mjög gott en hægra hnéð mitt er víst eitthvað innskeift alltaf. annars æðislegt:) i gær var laugardagur, ekkert að gerast, svo ég fór á pósthúsið og pjónaði svo 2 húfur, bakaði marenstoppa, og mér líkar btw ekki svo vel við þennan ofn! jæja ekkert búið að gerast í dag nema ég var í tölvunni og fekk mér lúr og svo prjónaði smá en nennti því svo ekki lengur.
held þetta sé komið nóg í bili
04. nóvember 2007 klukkan 14:35
Lóa Maríanna Ţórđardóttir 3 athugasemdir
jæjats.. Gerði voða lítið um helgina, horfði á simpson og scrubs og Earl og House og Family guy á laugardaginn þegar ekkert var að gerast í skólanum, á sunnudaginn vorum við að mála á blöð allan daginn og það var gaman:D Síðan gat ég ekki sofnað fyrr en rúmlega 2 í nótt en var samt ekki þreytt í morgun! kraftaverkin gerast;D Fór í Spinning"kennslu" bóklegt. síðan í að gera fimleika á loftdýnunum en þegar ég var að gera kraftstökk þá lenti ég frekar ílla og meiddist mig í bringunni, þannig ég var ekki mikið að gera eftir það:) svo var söngur og síðan fór ég í Keramik, sem er svona valfag hérna, förum í það einu sinni í viku í 3 tíma og 15 mínótur. Svo núna er ég smá þreytt, en á eftir er ég að fara á Cheerleading æfingu, og við erum að fara hendastuppí loftið svo það verður gaman, en málið er það að ég er alltaf svo svöng á kvöldin þegar ég á ekki mat sjálf að ég kálast úr hungri. Svo núna var ég svo sniðug að ég tók baraasta extra mat og geymdi hann í ískápnum frá kvöldmatnum. Annars var maturinn hér miklu betri í byrjun skólans, en hann er frekar slabbí þessa dagana. Núna er ekkert að gera fyrr en eftir 2 tíma svo hér sit ég og fræði ykkur um dagana mína. á Morgun er Adventure og síðan einhver fundur og svo Spinning. á Miðvikudaginn förum við svo í Adventure kapphlaupið sem á að taka rúma 24 tíma. ég vona að ég fái nægan svefn fyrir þann dag. En nóg í bili sé ykkur seinna;)
29. október 2007 klukkan 17:40
Lóa Maríanna Ţórđardóttir 4 athugasemdir
Gullsmíði? nenni ekki að læra svona mikið í því, 4 ár! Kjólsaumur? gaman að kunna, kannski ekki mikið nenn til þess samt flugfreyja? gaman í svona 1 sumar kannski:D en ég þarf að vera amk 21 árs Heimspeki í háskólanum? tjah íþróttafræði í HKí? er það ekki svo langt í burtu? Vera hérna áfram?
Ég veit ekki hvað mig langar
29. október 2007 klukkan 11:57
Lóa Maríanna Ţórđardóttir 4 athugasemdir
Góðan daginn kæru lesendur það sem hefur á daga mína drifið núliðna viku er ekki margt. jújú ég keypti mér liti og blöð og prjóna og garn og striga. já ég þarf að stytta mér stundir svo mér leiðist ekki. En hins vegar þá á ég mér leynivin sem bjargað hefur dögum mínum og aldeilis stytt mér stundirnar. Þar sem hann er leynivinur, þá mun ég ekki nefna nafn hans á nafn, en hins vegar segja það að hann kommentar aldrei á bloggin mín og vil ég segja við þig nú haddi, það er aldeilis hugrekkið sem þú hefur ekki að kommenta, því þú veist hvað ég verð sterk þegar ég hef það í hyggju að koma heim, og já ég mun lúmbra á þér fyrir að aldei hafa kommentað, en hins vegar þá skal ég ekki lúmbra á þér 2 því eins og ég sagði áðan þá skulda ég þér þakklæti:) en jæja, snúum okkur að mér núna. Ég er búin að vera laserus síðan á þriðjudeginum, og hefur það verið mjög svo þreytandi og leiðinlegt. Annars er ég búin að vera að teikna og prjóna. þriðja er ég búin að vera reyna að búa til vinaband handa Kötu, en þar sem ég hef átt í töluverðum erfileikum með það þá tókst það því miður ekki. Notabene, ekki ráða mig í vinnu sem vinabandabúatilari. Annars gengur allt vel og ég skemmti mér konunglega hérna:D Kv Vesturáttin hins vegar leiðst mér svolítið núna, en aðeins þessa sekúntuna, en annars veit ég ekki hvað leiðist þýðir. þannig kannski ætti ég bara að skrifa meira. Cheerleading showið er bráðum að verða tilbúið, ekki strax samt. Við verðum í Cheerleading búningum yeiij. Skamms vegar er mér illt í hjartanu og vinstri hendinni, en ætla að ákveða að það sé bara ímyndun í mér, líkt og köngulærnar í herberginu mínu. jæja ég er búin hér, vonandi hafiði átt góða tíma að lesa bloggið mitt því annars hafið þið eytt dírmætum tíma ykkar í að lesa það, og ef svo er Múhahaha, já , þá ætla ég sko að hlægja að ykkur. Múahahahha kv Austuráttin
26. október 2007 klukkan 19:57
Lóa Maríanna Ţórđardóttir 5 athugasemdir
æjh núna er ég búin að vera að hugsa og hugsa og hugsa og fengið slatta nægan tíma til þess, og þessar hugsanir leiða mig bara í hringi og ég veit ekkert hvað ég á að gera. sko ég var að kíkja á bílanámið, og þar stendur bara að það séu einhver heil 4-5 ára nám með starfsþjálfun eða allavega eitthvað sem ég skil ekki á borgó síðunni. sko mig langar að koma heim eftir áramótin, en ég er samt alls ekki búin að ákveða mig. já Baddi, ég skil núna hvernig þér leið.
Kostirnir við að vera hérna eftir áramót eru:
Aktivitetsleder; og þar opnast margar dyr fyrir mig í íþróttabransanum heima, í UMFÍ, ég fengi hugsanlega að fara með umfí í útlandaferðir í tengslum þá við íþróttirnar eins og Bjarney fór með öðrum krökkum í fjallaklifur eða hvað sem það var man það ekki alveg, og þetta fengi ég ef ég færi í Aktivitetsleder hérna í skólanum.
Ég væri að gera eitthvað, s.s. væri í skólanum.
Myndi kynnast fleiri krökkum frá hinum og þessum löndum.
Myndi Stunda íþróttir í hálft ár í viðbót, sem styrkir mig ennfremur, þar til ég (eins og allir aðrir) fer að rotna og rýrna við 25 ára aldurinn
Myndi kannski læra meiri þolinmæði og þrautseigni í neikvæðum samræðum við Jens
Gallarnir við að vera hérna eftir áramót:
Veit ekki hversu vel ég gæti notið þessarar þá nýopnuðu dyra frá Aktivitesleder
veit ekki hvað ég gæti valið sem Annað fag og innblástursfag eftir áramótin, því það sem ég valdi, er ekki spennandi núna það sem ég hef kynnst því betur.
home sweet home, Sakna fjölskyldunar, lífsins heima og vinanna minna.
Krakkarnir hér fara út að djamma og drekka næstum hverja einustu helgi og þar með fimmtudagurinn og föstudagurinn líka, og mér finnst bara eiginlega alls ekki gaman að fara útá djammið, og allra síðst drekka.:/ svo þá er ég eiginlega bara að fíla mig í klessu.
þyrfti líklegast að þola jens og alla neikvæðnina í honum, sérstaklega þá sem beinist að mér.
Myndi sakna Badda endalaust mikið
Kostirnir við að koma heim:
Kæmi heim:D myndi ekki þurfa að sakna alls. Mig langar heim og hugurinn er heima. hvort sem ég væri hér eftir áramót eða ekki þá kæmi ég alltaf heim því heima er best.en mig langar heim núna, þótt þetta sé spennandi og gaman og allt það.
Mér datt þessi snilldar hugmynd í hug!! að búa til íþróttalýðháskóla á Íslandi!!:D það yrði kannski svolítið erfitt að stofna fyrirtæki, og þá sérstaklega skóla sem yrði fyrir krakka á mínum aldri... og þar sem ég er frekar ung ennþá yrði það kannski ekki besta hugmyndin. En þá datt mér í hug að ég fæ Bara mömmu og pabba til að sofna þetta með mér?? hver er með ha?;D
læra Bifvélavirkjann ?
Vera með Familíunni, (já mamma, þú segir að þið verðið þarna allltaf til að styðja á mér bakið, en málið er að við verðum ekki öll þarna alltaf)
Gallarnir við að koma heim:
Veit samt ekki hvað ég ætti að gera
Vinna með skóla allavegana, dominos? spinningkennari? haha
læra bifvélavirkjun ? myndi svo bara hafa það sem auka vinnu, þ.e.a.s ef ég myndi fara þá leið.
Háskólinn ? veit ekki hvað mig langar að læra
listnám ? nah.. list er ekki eitthvað sem maður lærir, mín skoðun, og list er bara það sem ég vill gera að hverju sinni og þá þarf ég alls ekki einvherja kennara til að þrýsta á mig til að búa til eitthvað
Arkitektúr ? kannski, en þarf maður ekki svo háar einkunnir í það? og er það ekki svo langt nám?
læknirinn ? LANGT NÁM, þarf háar einkunnir og margar gáfur, bóklegt nám nottla líka, Mjög erfitt inntökupróf og ef ég ætla verða læknir þá finnst mér ég alls ekki tilbúin til þess að læra það núna á næstu misserum
ég hef eiginlega bara ekki þolinmæði í lengra en mestalagi 2-3 ára náms... sem er frekar slæmt því flestar námsbrautir eru fleiri ár.
eiginlega ekkert bóklegt freistar mín:/
Heimspeki ? hvað gagnast hún mér í framtíðinni? jájá kannski í daglegu lífi en launahækkanir og allt það heila klabbið?
ÉG er bara búin að finna það út að mig langar ekki að fullorðnast! mig langar ekki að fara í háskóla því þar fullorðnast maður og fær svo vinnu á vinnumarkaðinum. Mig langar að vera Vanda og fljúga um Hvergiland. Mig langar að vera alltaf stelpa og aldrei verða leiðinleg feit subbuleg kerling, en samt langar mig alveg að eldast, en bara allllllllls ekki strax. Mig langar ekki að þurfa ákveða eitthvað svona stórt núna þegar ég er ekki einu sinni með rænu um það hvað ég vil llæra. en svona þegar ég skoða aftur var Hraðbraut allls ekkert leiðinleg, þótt það var erfitt á tímum. það var barasta mjög skemmtilegt:) og það að það er ekkert sem kallar á mig sem ég bara þarf að gera eða langar rosalega mikið til að gera, eins og hefur alltaf verið.
Svo hérna stend ég á tímamótum, fer frá þeim tíma sem ég vissi allt og hafði hugmynd um hvað ég ætlaði að gera - og til þeirra tíma sem ég veit ekki neitt um hvað ég ætla að gera og hvað mig langar. Lame ha? arg ég gæti argað útí geiminn en ég myndi lítið af svörum fá þaðan, allavega svo best sem ég veit.
a little help væri gott að fá:)
kv María - EEEeeeeENnNEnnNNnNNAaaAA
22. október 2007 klukkan 15:07
Lóa Maríanna Ţórđardóttir 5 athugasemdir
Jæja, langt síða ég bloggaði seinast. Margt búið að gerast.
Seinasta powercuppið sem réði úrslitum var, það var einskonar fitness braut. ég held því fram að klukkan hafi verið gölluð þegar ég var í brautinni, því ég var alls ekki fyrst!:( en það var pottþétt vitlaus klukka:) en úrslitin urðu þannig að ég Var í fyrsta sæti samanlagt og Vann powercuppið!:D
Á mánudaginn var okkur skipt í 4-5 manna hópa og við áttum að fara í ævintýraferð. Ég var með Ditte, Jonas og Hege. við löbbuðum og löbbuðum allt að 10 km áður en einhver pikkaði okkur upp (vorum að reyna húkka) en svo kom gömul kona og skuttlaði okkur til Lökken, fórum á ströndina og kíktum í hitlersskýlin. löbbuðum og löbbuðum meira og enginn vildi taka okkur uppí, skiptum okkur samt i 2 og 2. tókum svo rútu á næsta bæ til Hjorring. Fengum þar fría pizzu þar sem við jónas fórum að sögðum að við værum í ævintýraferð og máttum ekki nota neina peninga hvort þau vildu gefa okkur að borða því við væru svo svöng. það fengum við, auk 2 pulsna, og um morguninn 8 rúnstykki og brauðbollur:) gistum heima hjá Ditte og horfðum á mynd. svo húkkuðum við far til brönderslev, héldum að við þyrftum að labba alla leiðina, svo við lögðum af stað 10 leytið, en 2 bílinn sem keyrði framhjá tók okkur öll uppí og skuttlaði okkur heim. við vorum komin um hádegisbil, en máttum ekki fara í skólann fyrr en 4 svo við fórum á bankarölt og fengum frítt kakó og nammi:) og í búðir:)
Bakaði rúllutertu á þriðjudaginn sem var miklu betri en hin sem vantaði í matarsódann;D
á miðvikudaginn fengum við að velja hvað við vildum gera, ég valdi að fara í svona æjh svona krem á andlitið og hendurnar og hárið, eitthvað sem Eva myndi hlæja að mér fyrir að vita ekki:P haha:D en Baddi fekk ekki að velja því hann varí politi dæminu:(
Á fimmtudaginn var ekki gert mikið, bara dansað samkvæmisdansa og ég þurfti að vera strákurinn og gat þá ekki dansað við badda:( en við dönsum bara saman seinna:D múahha þú sleppur sko ekki úr þessu:D
Á fimmtudaginn fórum við Baddi til kaupmannahafnar. Gitte, kennari sagði að skólastjórinn hann Troels hafði bannað mér að fara með honum og ég ætti að kveðja Badda í skólanum. haha ég tók það ekki í mál, þau eiga ekkert með mín einkamál að gera. Við komum um 10 leytið til köben og heilsuðum uppá Caro, Louisa var farin að sofa. Vöknuðum svo um 9 leytið og kíktum í bæjinn:) Baddi keypti hvíta phonsjóið sem ég hafði verið að horfa á og langa í síðan ég kom til danmerkur:D:*takk:*
Síðan fórumvið á flugvöllinn og Baddi fór heim
Ég fór og fekk mér kakó og ís, síðan afturí bæjinn og keypti mér allt sem ég þurfti til að gera alllt. blöð, liti, möppur, garn, prjónar og fleira. síðan keypti ég blóm handa Louisu:) svo fór ég og náði í i-podinn minn til hennar og heilsaði þá uppá Fine og Martin líka.
svo fór ég í lestina. var komin mjög tímanlega, og stóð fyrir utan lestina þegar hún fór, því ég hélt þetta væri vitlaus lest. en þetta var víst alveg rétt lest. bara vitlaus vagn sem ég stóð hjá, hefði átt að fara í C vagn, en stóð fyrir utnan a eða eitthvða álíka lame og hélt þess vegna að þetta væri vitlaus lest. þessi lest fór til Brönderslev og ég hefði ekki þurft að skipta neitt. En NEI. ég þurfti að bíða í klukkutíma eftir næstu lest. hitti einhvern frekar sérstakan mann í hausnum sem hafði víst verið á spítala og gæti ekki talað við neinn, en núna væri hann nýkominn út og þess vegna talaði svo mikið. svo fór ég í lestina. Siminn minn hringdi örugglega svona 6 sinnum. Loksins sagði einhver kona rosalega pirruð " þetta er ÁN HLJÓÐS KLEFI OG ÞAÐ MÁ EKKI TALA Í SÍMA!!" haha það var skondið.
svo skipti ég í Aalaborg og beið í hálftíma og fór svo í lestina og hitti Sigga og Möllu, sem eru í skólanum líka:)
Á laugardaginn fórum við til Arhus og sýndum showið og horfðum á 2 kvennahandboltaleiki. það var alveg ágætt bara. Ég át restina af rúllutertuni þar ein:D múahha;) svo komum við heim.
í dag er ekkert búið að gerast. Nema bara að ég tók til og náði í restina af dótinu hans Badda úr herberginu hans og raðaði öllu í skápinn minn og herbergið mitt tók til í því og sópaði meira að segja, svo núna er herbergið mitt rosaflott:)
Maturinn í kvöld var svínakvöt og karteflur og grænmeti. Wá hugsaði ég jess þetta verður sko gott:D þegar ég setti bita af svínakjötinu upppí mig, þá fann ég þetta yndislega skólp bragð. það mætti þess vegna segja að mér hafi ekki líkað maturinn í kvöld.
ojæja ekki meira núna -Maríannan
21. október 2007 klukkan 17:11
Lóa Maríanna Ţórđardóttir 6 athugasemdir
NÚNA VAR ÉG AÐ SETJA INN MYNDIR FRÁ KARABÍSKA HAFINU, AF MINNI OG BADDA VÉL. ER AÐ SETJA INN MYNDIR FRÁ ÞÓRSMÖRK OG SÍÐAN KOLL AF KOLLI:) WWW.LOAMARIANNA.BLOG.IS
ég er samt búin að fylla www.loamarianna.bloggar.is þannig að ég verð bara með 2 myndasíður, www.loamarianna.blog.is og www.marianna05.blog.is alveg að verða búin að setja allar myndirnar inná:)
Er búin að setja tengla inná síðurnar hérna til hægri svo endilega kíkiði! það eru myndir frá seinasta vetri;D -- tjekkit out
jæja mikið búið að gerast síðan ég bloggaði seinast. Ég vann 1000m sundið í powercupinu. Síðan á föstudaginn var Triathlon,sund, hjól og hlaup. það átti að vera synda 400m, hjóla 18 km og hlaupa 4,2 en því var breytt í 200m sund, 10km hjól og 2,1 km hlaup. Ég var með forrustuna alveg þangað til að hjólavegalengdin var hálfnuð. Þá tók Joo framúr mérog síðan kom Stine. það var ekki skemmtilegt þannig að ég þurfti að hjóla og hjóla og hjóla þangað til að ég mátti hlaupa, þá hljóp ég og hljóp og hljóp, þá náði ég Stine og átti ekki langt í Joo. Mér finnst það miður en ég verð að segja ykkur að ég náði henni ekki og ég vann ekki, heldur munaði um 7 sekúntum á mér og Joo og lenti ég því í 2 sæti og var ég harmi slegin. það er aðeins 1 powercup eftir og er það Duathlon, hlaup, línuskauptar og hlaup. ÉG verð að vinna þar og verð að fá 4 selpur til að vera á undan Joo til þess að ég geti unnir powercupið. Ef ég hefði bara náð hennni í Triathloninu þá hefði ég bara þurft að vinna hana en hún er nuna með 43 stig og ég 39, hefði ég unnið væri ég með 40 og hún 42. ÉG VERÐ AD VINNA, annars má ég sængurfold heita. á fimmtudaginn var Cheerleading kvöld. þá Komu allir sterku strákarnir Baddi auðvitað fremstur í flokki;D og henntu okkur Cheerleading stelpunum upp í loftið. það var mjög gaman, og fékk ég að gera hin ýmsu stökk og teknar voru myndir og alles galles.Bráðum klæðumst við svo alvöru Cheerleading búningum og verðum frekar mjög töff. Síðan Var brotist inn til okkar og stolið fullt af hlutum eins og myndavél síma úri og i-podi. Myndavélin fannst í gær og er komin aftur í réttar hendur. þegar við Baddi settum svo myndirnar inní tölvu þá kom það í ljós að þjófarnir höfðu verið að taka myndir af sér. ekki mjög vel skipulagðir þjófar að mínu mati. algjörir Hálfvitar.
Á seinasta mánudag forum við Til Ollerup. Þar hittast allir íþróttaskólarnir og keppa í öllum mögulegum íþróttagreinum.Ég valdi Advetnurerace og við vissum ekki bobbs á hverju við áttum von á en fengum að vita það að við ættum kannski að synda.Við vorum komin til Ollerup um 6 leytið á mánudeginum og þá var skólinn skoðaður og kvöldmatur fenginn.Síðan á þriðjudeginum vöknuðum við og kl 9 var startað Adventureracinu. Ég Trine og Joo.Við byrjuðum á því að hjóla, fengum 2 kort og 1 stað sem við áttumað fara á, á þessum stað fengum við þraut sem að við áttum að leysa og þar lá líka kort sem næsti staður stóð, og þurftum við að teikna þann stað inná kortið okkar og flýta okkur svo að hjóla þangað.Þetta gekk svona langa lengi. Þrautirnar voru ýmist létt stærðfræðidæmi hugarreikningur, reipaverkefni eða ýmiskonar þrautir.Þá loksins komum við að þraut sem við bustuðum. Áttum að gera tvöfalda áttu með stóru reipi sem var fast við ljósastaur, en 1 maður mátti halda í 1 endan á reipinu og 2 menn í hinn endann (en það voru 2 endar því reipið var bundið við ljósastaurinn og já já þið skiljið vonandi:D) stelpurnar voru ekki bjartsýnar á þetta en djí þetta var líklegast eitt það verkefni sem tók hvað minnstan tíma og ef við gerðum það fengum við 15 min teknar af tímanum okkar.Þetta tók okkur 1 min eftir að ég var búin að segja ráðalausu stelpunum sem vorumeð mér í hóp hvað þær áttu að gera... haha það var nú eiginlega bara ég sem leysti öll verkefnin.Bjáwnar. Eftir þessa þraut áttum við að skilja hjólin eftir og Hlaupa.Ég var samt ekkert æðislega góð í að hjóla, miðað við þær því þær eru danir og hjóla mikið mikið meira en ég.En ég var miklu betri en þær að hlaupa, ahh joo hjóp bara á undan okkur á medan við vorum með kortið, og gat svo ekki hlaupið meira þegar hún hljópí vitlausa átt og stoppaði ekki fyrr en við vorum búnar að kalla og kalla,hinni var illt í fætinum og gat ekki hlaupið mikið.Síðan voru þær kjáwnar með kortið og var það ýmist ég sem leiðrétti ef þær voru að fara vitleysur og endaði með að ég tók kortið.:) Múahaha:D ég er svo best.Síðan þegar við vorum búnar að hlaupa 2 stations þá áttum við að fara útí sjóinn og synda.Hann var Ískaldur!!Ég og Trine fórum úr jakkanum og bolnum og vorum á stuttbuxum og topp.Joo fór hins vegar úr öllum fötunum og mætti hér helst nefna að sjórinn var um 40 cm hár fyrstu 20 metrana. Þessa sjón langaði mig ekki að sjá og allra helst ekki strákunum sem þarna stóðu og hlífðu sér með því að snúa í hina áttina.Við þurftum að bíða Mikið eftir henni því auðvitað þurfti hún að fara í öll fötin aftur! Ahh það var alls ekki gaman enda var öskrað og öskrað á hana, þetta var jú keppni.Síðan áttum við að finna hjólastöðina og hjóla aftur úppí skóla.Það var frekar löng vegalengd.Og Við vorum að renna út á tíma.Joo hjólaði auðvitað á undan okkur því hún þarf alltaf að farara framúr þótt við sögðum henni að við værum hópur sem ætti að halda sig saman!! Auðvitað fór joo framhjá seinustu stöðinni og þurftum við að ná í hana og fara með henni að seinsustu stöðinni,þar leystum við þraut sem var að klifra uppi í tránum á böndum og þurftum að tryggja okkur með karbínum sjálf.Það var alveg æðislegt:D nema það hvað joo fór hægt.En að lokum Unnum við þegar við vorum búin.:D það var mjög ánæjulegt vegna þess að við héldum að við værum að renna út á tíma en þessi yndislegu verkenfi sem ég leysti dróu klukkutíma og kortér af okkur svo við vorum bara 6 tíma og eitthvða.En í alvörunni rúma 7 tíma.Seinna fengum við að vita að þetta vorum rúmir 60 km sem við hjóluðum, 10 sem við hlupum og um50m sem við syntum í ísköldu vatninu.Við vorum eina liðið sem vann keppni í Ollerup og var ég nú bara frekar stollt af því.Baddinn minn valdi fótboltakeppni og Gekk það bara ágætlegaJ
Svo erum við að gera svona “Show” núna.Mikið af dansi og allir eru með.Svo er skipt í hópa, Indiana Jones, 007, og MIB, Baddi er í 007 og ég er í MIB.Þeir eru að gera rosaflott atriði með stragt og 007 gellan föst þar uppi og Bond þarf að bjarga henni, síðan eru “góðu kallarnair” að reyna ná þeim vondu og þetta er mjög flott, stökkva yfir elda og sveifla sér í stragtinni og berjast og alles:DVið erum hins vegar að dansa rosaflottan dans:Ddans er alveg ágætur en eins og seinustu helgi vorum við að dansa viðstöðulaust frá 8-4 og með kannski tveimur 10 mínótna pásum og á sunnudeginum 12-4, það var alveg komið yfir nóg fyrir mig að dansa. ;PJ
Næsta vika er þemavika og snýst hún um áfengi og ekki veit ég meir.
Ég átti víst afmæli á föstudaginn 5. okt:D takk fyrir takk:Dog Fékk ég heljarinnar pakka senda hingað:DHrærivél og Hring frá mömmu og pabba og Einari og Halldóri og Katrínu og Magnúsi.Svo núna get ég bakað:D:D:D:D:DFrá ömmu fékk ég geisladisk og pjéningJTakk fyrir það amma mín:DFrá Carolinu og Louisu fékk ég Nammi:D það var æði.Og Síðast en ekki síðst frá Marek og Lukas og Matta og Hemma og Jóa fékk ég Viskí eða eitthvað álíka hét það.Haha það fannst mér mjög fyndið;)þannig að núna get ég gefið fullt af fólki áfengi eða geymt það þangað til það verður 100 ára og orðið svo milljónamæringur:D jíha.Þeir sögðu að ég yrði að drekka því ég væri nú orðin 18 ára, en þeim verður ekki að ósk sinni;D haha;) Erla og Bryndís hringdu í mig 12 á ísl tíma og ég var svoldið sofandi og vaknaði eiginlega ekki þegar ég talaði í símann og það var frekar skondið:’) Takk stelpur:DSíðan hringdi Hafdísin mín í mig og óskaði mér til hamingju með afmælið.:D:*Svo bakaði ég brúna rúllu og Djöflatertu með englakremi og heppnuðust þær alveg ágætlega nema hvað að ég var búin að kaupa allt í kökurnar en svo átti að setja matarsóda í deigið en auðvitað stóð ekki matarsódi utaná dönsku pakkningunum.Ég var ekki svo skörp að fatta að Natron ( sem ég hafði btw keypt) væri matarsódi, svo það fór engin matarsódi í deigið og varð það frekar flatt og ekki mikið loft inní því...:PKakan varð svo alveg ágætlega étanleg, en kremið var miklu betra:DDjöflatertan var hins vegar góð, en ég þarf víst að læra aðeins meira á þennan ofn því þetta er ekki blástursofn eins og heima heldur hitaofn kjaftæði:P:DSvo fóru Marek og lukas og jói og hemmi go matti áður en kökurnar voru tilbúnar því alltíeinu ákvöðu þeir að fara til köben, svo það var bara ég og baddi og Anders kennari og joo sem smökkuðu á kökunum,Marek lét mig samt lofa því að skilja eftir kökusneið handa honum.;)
Síðan ætla Kannsi Erla og Bryndís að koma til mín 13 nóvember:D:D:D það yrði geðeikt:D:D:D geðveikt geðveikt geðveikt:D
en ekki meira í bili ég heyri í ykkur seinna asnakjálfarnir mínir:*;)
kv Maríannan
07. október 2007 klukkan 14:22
Lóa Maríanna Ţórđardóttir 4 athugasemdir
ÉG var AÐ BLOGGA EN ÞAÐ FÓR ÞVÍ ÉG ÝTTI Á VITLAUSA TAKKA! það var orðið helvíti langt!! svo núna er ég reið og nenni ekki að skrifa mitt yndislega blogg upp aftur!
Kveðja Bitra Maríannan afmælisbarn í gær
06. október 2007 klukkan 20:30
Lóa Maríanna Ţórđardóttir 1 athugasemd